Byggingavörur · Verkfæri · Vélar

Allt sem þú þarft á verkstað – á einum stað.

Verslun í Þorlákshöfn með 7.743 vörur og verð hér á vefnum. Frá skrúfum og rörum til rafmagnsverkfæra og málningar.

Vöruflokkar

Sparaðu tíma og peninga – verslaðu í heimabyggð

Mikið er um framkvæmdir í Þorlákshöfn. Næsta byggingavöruverslun er að minnsta kosti 25 mínútna akstur í burtu – fram og til baka er það klukkutími sem enginn borgar þér fyrir. Með starfsmenn á launum margfaldast sá kostnaður, svo ekki sé minnst á eldsneyti og slit á bílnum.

Hjá okkur færðu það sem vantar á staðnum, svo vinnan stöðvist ekki.

  • Mikið úrval fyrir rafvirkja, smiði, pípara og málara
  • Fljót og persónuleg þjónusta