Um okkur

BÚÐIN Perlan er lítil byggingavöruverslun í Þorlákshöfn sem opnaði í október 2024. BÚÐIN, eins og við köllum hana, er hugsuð fyrir íbúa og iðnaðarmenn á svæðinu: helstu vörur og verkfæri á staðnum, svo ekki þurfi að keyra alla leið í bæinn eða á Selfoss eftir hlutunum.

Þorlákshöfn er í mikilli uppbyggingu og við höfum lagt okkur fram um að útvega fólki það sem vantar. Þess vegna hefur vöruúrvalið vaxið hratt. Við bjóðum meðal annars upp á skrúfur og festingar, verkfæri, raflagnaefni, pípulagnaefni, málningarvörur, vinnuvettlinga og hlífðarfatnað, olíur og hreinsivörur, ritföng, veiðivörur, garðverkfæri og gæludýrafóður. Á vefnum eru 7.743 vörur.

Finnurðu ekki það sem þig vantar? Spurðu okkur. Við verslum við fjölda birgja, meðal annars Ferro Zink, Redder, Vatnsvirkinn, Reykjafell, Málning, Poulsen, Kemi, Valás, Egilsson/A4, Verkfærasalan, Hundakúnst, Petmark, Garðheimar, Eldvarnamiðstöðin, Barki, Ísfell og Veiðihúsið, og leitum víðar til að redda því sem viðskiptavinir okkar þurfa.

Eigendur BÚÐARINNAR Perlan standa við afgreiðsluborðið í búðinni
Við í BÚÐINNI, Vesturbakka 3 í Þorlákshöfn